Auglýsing

Kaupthing open

28. apríl 2007 klukkan 16:46

Halló

Allt ágætt að frétta héðan úr sólinni, það er ekkert lát á góða veðrinu hérna úti og maður fer ekki úr stuttbuxunum. Það er ekkert leiðinlegt.

Maður er svona búinn að vera bralla eitt og annað hérna síðustu dagana, mest bara að æfa og hafa það rólegt inná milli.

Í dag keppti ég á Kaupthing Open og spilaði ég minn besta hring á ævinni. Spilaði á 70 höggum eða 2 undir pari. (par 72)  Var að vísu kominn 5 undir eftir 13 holur en svona er golfið bara. Var með 6 birdie 4 bogey og 8 pör.

Hitti 7 brautir, 14 green og var með 30 pútt, þar af 3 þrípútt.

Alger snilld var kominn með 6 birdie eftir 11 holur......humm, síðan slökknaði aðeins á game inu, dáldið stress í gangi, en það kemur vonandi bara með reynslunni.

En annars mjög góður dagur að baki.

Næstu helgi er ég að fara að taka SAT próf því ég er væntanlega að fara í skóla í Bandaríkjunum í haust, en það á eiginlega bara eftir að reka endahnútinn á þann pakka, kemur í ljós betur núna í maí, vá hehe, bara maí á þriðjudaginn, og þá styttist í endann á þessu enda seasonið að fara að byrja heima á Íslandi. Ég kem heim aftur 16. maí og verð á Íslandi í sumar,  endalaus ferðalög á manni hérna. En það er bara mjög gaman og maður verður bara reynslunni ríkari að kynnast þessu öllu.

Ætla líka að lokum að óska MK ingunum til hamingju með að eiga bara prófin eftir en þau voru að dimmitera í gær, úff ég man alveg hvað þetta var gaman.....góðar minningar.

Segjum það allavega í bili
kv
Valli

Valgeir Tómasson
1 athugasemd

Í Lúx

19. apríl 2007 klukkan 15:44

Þá er ég kominn til Lúx aftur eftir mjög gott páskafrí heima á Íslandi, endaði á því að skreppa norður á Söngkeppni framhaldsskólanna með Hirti, Ásgeiri, Viktori og fleiri félögum og hugsanlega svona 1000 90 módelum.

Síðan tók við ferðalag til Lúxlandsins og tókst það vel og er ég kominn heilu og höldnu aftur út.

Síðan ég kom hefur verið alveg bongó blíða hérna og maður labbar um á stuttbuxum og bol og er í gúddí fíling, annað en skíturinn heima á Íslandi......

Núna verður tíminn nýttur í að stunda golfæfingar af krafti og hugsanlega hætta að vera félagsskítur í Lúx....

hef eiginlega ekki meira að segja frá í bili, nema það væri gaman að sjá hverjir væru að lesa þessa vitleysu í mér, þannig að þið megið alveg kommenta

kv
Valli

Valgeir Tómasson
3 athugasemdir

Á Íslandi

09. apríl 2007 klukkan 13:45

JEbbs, þá er maður kominn heim til Íslands, búinn að hafa það rosa gott um páskana, skrapp upp í bústað með mömmu og pabba, búinn að borða rosa mikið af góðum mat og slappa af.

Ég verð heima fram á næsta mánudag og það verður nóg að gera í vikunni við að redda hinu og þessu.

allvega nóg um það

Simmi var á Augusta national að fylgjast með Masters um helgina, örugglega rosa gaman hjá honum, hann var bara með Tiger og félögum á svæðinu að fylgjast með. Alger draumur, spurning hvort maður reyni ekki að komast á svona mót í framtíðinni, aldrei að vita. Mjög skemmtileg færsla um það á www.simmimasson.bloggar.is .
(ég er svo öfundsjúkur að það liggur við að ég skrifi eitthvað slæmt um hann helv... hehe)

En núna reynir maður bara að njóta þess að vera heima áður en maður fer aftur í sumarið í Lúx, hlakka mikið til, þá verður bara golfað út í eitt og haft það fínt.

læt þetta nægja í bili
kv
Valli

Valgeir Tómasson
Engin athugasemd

Páskarnir nálgast...

31. mars 2007 klukkan 20:58



Ætlaði bara að láta svona vita af mér, héðan er allt gott að frétta, veðrið orðið betra og golfæfingunum fer fjölgandi. Núna styttist í páskana og þá er aldrei að vita hvað maður gerir.

Einstaklega lítið í gangi eitthvað síðustu daga, maður þarf að fara að taka sig til og skoða sig eitthvað um.

MR-MK í gær í Gettu betur, ég er ekki frá því að ég  hafi tárast, þvílíkt nálægt því að landa þessu strákarnir. Ég trúi þessu bara ekki að þetta hafi gerst. En þeir stóðu sig eins og hetjur og ekkert hægt að gera við svona nema læra af því og koma tvíefldir á næsta ári og klára dæmið.

Er búinn að vera skoða flug héðan og eitthvert, sá flug í gær sem kostaði 0,01 Evru, eða eitt cent. Það eru ca 0,9 krónur. Síðan á maður eftir að borga skatta og eitthvað, samt sem áður mjög furðuleg verðlagning.

Jebbs, Liverpool-Arsenal í dag, mikið sem ég var sáttur með mína menn, nallarnir voru barasta teknir í bakaríið og ekkert skilið eftir, ágætt þar sem helmingurinn á heimilinu eru Arsenal menn, en ég var samt einn að horfa á leikinn.

En svona er þetta, ágætis blogg um ekki neitt, ég þarf að fara að láta eitthvað meira gerast hérna svo maður hafi eitthvað að skrifa um.
Þetta er ágætt í bili

kv
Valli

Valgeir Tómasson
1 athugasemd

Uti er alltaf ad snjoa

23. mars 2007 klukkan 11:51

Hvad er malid, i sidustu viku var 17 til 19 stiga hiti og thegar ad eg kem aftur byrjar bara ad snjoa, alveg vonlaust, vedrid a ad skana um helgina og verdur sidan gott i naestu viku, tha getur madur farid ad aefa aftur af viti.

kv
Valli

Valgeir Tómasson
2 athugasemdir

Kominn

21. mars 2007 klukkan 15:41
Þá er ferðin til Austurríkis yfirstaðin, og þvílika snilldin sem þessi ferð var.

Ég hitti hópinn í Frankfurt og var það mikil ánægja að sjá andlitin og strax á flugvellinum sá maður að þessi ferð ætti ekki eftir að verða leiðinleg.

Eftir langan akstur frá Frankfurt komumst við a endanum til Austurríkis, fyrstu nóttina gistum við á farfuglaheimili svona klukkutíma frá Sölden, en þangað var ferðinni heitið. Morguninn eftir var vaknað snemma og lagt af stað uppi fjall og fyrsti dagurinn nýttur í fjallinu þangað til við myndum fá íbúðirnar okkar. Þennan dag var mikil snjóblinda og maður hafði ekki hugmynd um hvernig allt sneri, annars var bara fínt færi.

Næsta dag var orðið heiðskýrt, og það var heiðskýrt næstu 7 daga, þannig að fyrsta verkefni var að fjárfesta í sólarvörn og næsta dag ÞURFTI að fjárfesta í aftersun, en ég er ekki frá því að það sé lítið eftir í þeim brúsa.

Íbúðirnar sem við vorum í  voru staðsettar um 300 metra frá kláfnum upp í fjall þannig að flesta morgna var maður mættur í kláfinn uppúr 8 og dagurinn nýttur nokkuð vel. Færið var fínt í byrjun vikunnar en eftir því sem að sólin bræddi meiri og meiri snjó varð færið verra og verra. Það var samt hægt að fara upp á jökul að renna sér og færið þar var alltaf gott. Einnig urðu sólbaðsferðir algengari eftir því sem að maður þreyttist og leið á vikuna enda var veðrið ekkert að breytast.

Einn daginn kíktum við í bæjarferð til Innsbruck til að kíkja í búðir og náði maður aðeins að eyða nokkrum evrum. Einnig voru nokkrir sem ákváðu að fjárfesta í skíðum og ég er ekki frá því að við höfum farið að fá Íslendinga afslátt í bænum þarna.

Annars var bara mikið gert af því að skemmta sér, hafa gaman og láta eins og fífl (leigubretti *hóst*) í þessari ferð og vonandi getur maður gert eitthvað svona aftur.

Síðan var bara haldið heim á leið og tók sú ferð góðan tíma og síðan var hópurinn kvaddur í Frankfurt og haldið heim á leið til Lux.

Takk fyrir góða ferð krakkar

Myndirnar mínar eru á http://public.fotki.com/Vallitommi/austurrki/

Myndir frá Bergi eru komnar inná www.heimska.com

kv
Valli

Valgeir Tómasson
Engin athugasemd

Austurriki

08. mars 2007 klukkan 17:32
Eg aetla ad skrifa herna orstutta faerslu,

= nu er eg buinn ad pakka fyrir austurriki, fer i lestina i fyrramalid, get ekki bedid

= for i golf i dag i geggjudu vedri, er ekki fra tvi ad eg hafi tekid sma lit i framan, allavega er mer mjog heitt.

= ja snilldin ein, get ekki bedid eftir tvi ad hitta krakkana um hadegi a morgun.

= eg aetla ad reyna ad vera duglegur ad taka myndir og vonandi get eg sett thaer a netid thegar eg kem heim.

En laet i mer heyra naest thegar ad eg verd kominnn heim fra Austurriki

kv
Valli
Valgeir Tómasson
Engin athugasemd

Godir dagar framundan

06. mars 2007 klukkan 13:40
ja lifid heldur afram sinn vanagang herna i Luxembourg.

Eg reyni sem mest ad spila her a daginn og sendist sidan med guttana heim ur skola eda til vina sinna. Algert luxuslif, og eg gaeti alveg hugsad mer svona lifstil. Thurfa bara ad hafa ahyggjur af tvi ad hvernig madur eigi ad komast upp a golfvoll og hvort madur eigi ad spila eda vera a aefingasvaedini. Alger draumur, sidan reynir madur lika ad vera duglegur vid ad hjalpa til her heima.

Eg og Biggi forum ad aefa i morgun upp a velli, og thad er magnad ad vera ad spila og greenin eru i standi eins og green um hasumar a Islandi,alger snilld, og thad er 6. mars.
Sem minnir mig a thad ad pabbi a afmaeli i dag, hann vill samt orugglega ekki ad eg segi hvad hann er ordinn gamall, en allavega til hamingju med thad gamli Glottandi

alveg merkilegt ad madur gleymi ollu sem madur aetlar ad skrifa thegar madur loksins fer ad blogga......ahh ja einmitt.

Ja thad er merkileg stadreynd ad herna uti eru held eg um 17 islenskir au pair. Og eg er einn strakur, thannig ad thegar thad er farid ut tha er thad mjog gaman, en lika spes. Eg dett kannski ekki alltaf beint inni allar umraedur en thad er baara fint ad hafa einhverja a sinum aldri til ad spjalla vid og kikja ut a kvoldin.

eg er buinn ad vera ad taka nokkrar myndir, en er ekki kominn med netid i tolvuna mina thannig ad eg hugsa ad thad komi ekki neinar myndir a netid fyrr en eg kem heim fra Austurriki

En Austurriki er adeins eftir 3 daga, thad verdur endalaust fjor og mikid gaman, en thetta er i fyrsta sinn sem eg fer i svona skidaferd lengra en a Akureyri, og eg get ekki bedid eftir tvi ad komast a brettid. Vubbidu.

Thetta lidur eiginlega of fljott, thegar  eg verd kominn heim fra Austurriki tha verd eg buinn ad vera uti i manud og tha eru 3 manudir eftir, uff, thetta er brjalad og verdur vaentanlega bara gaman.

en ad lokum lesid bokina Flugdrekahlauparinn, otrulega merkileg bok sem eg var ad klara.

Er ad fara ad skreppa til Belgiu nuna, hehe, stutt i allt herna.

kv
Valli
Valgeir Tómasson
Engin athugasemd

Simanumer

28. febrúar 2007 klukkan 19:44

Er kominn med nytt simanumer herna i lux.

Thad er 00352 691 956 863

Annars er allt gott ad fretta, madur er alltaf ad komast meira og meira inni i hlutina.

Vedrid er vonandi ad skana en thad er svoldid oft rigning herna, tha fara bara ad taka vid stifari golfaefingar, thangad til eg fer til austurrikis, er alveg geggjad spenntur, var ad tala vid mommu og pabba en thau eru i Noregi a skidum og eg get varla bedid eftir tvi ad hitta krakkana i thyskalandi.

Hofum thetta bara stutt i kvold
kv
Valli

Valgeir Tómasson
1 athugasemd

Kominn til fjolskyldunnar

26. febrúar 2007 klukkan 14:06

Tha er eg kominn til nyju fjolskyldunnar sem eg a eftir ad bua hja tangad til i Juni.

Thau bua i bae sem heitir Gonderange og i honum er ein bensinstod, skoli og nokkur hus. Thau voru ad flytja inn i husid i November og thad er alveg glaenytt.
Herbergid sem eg fekk er svo stort ad eg er med massift vidattubrjalaedi i tvi, hehe, en thad er alger snilld.

I gaer kynntist eg adeins familiunni og lyst mer bara frabaerlega a thau. Thau Hjonin Eggert og Ella eiga tvo straka Petur og Hilmar sem eru  mjog hressir og hugsa eg ad vid eigum eftir ad skemmta okkur mikid saman naestu manudi.
I gaer forum vid i bio a night at the museeum og spiludum korfu i bilskurnum, mega fjor.

Golfvollurinn er bara i 5 minutna fjarlaegd herna og eg hugsa ad tad verdi mitt annad heimili i vor, enda er vedrid ad verda agaett herna, eg kikti adeins a aefingasvaedid i morgun, tad var svoldid kalt en eg nadi godri aefingu. Fint ad vera bara med mp3 spilarann og ta getur madur verid einn med sjalfum ser lengi an tess ad manni leidist.

Eg aetla ad fara ad rifa upp myndavelina og taka myndir af svaedinu og leyfa ykkur ad sja hvernig eg hef tad. Koma vonandi myndir einhvern timann i vikunni.

Einhverra hluta vegna naer gemsinn minn ekki sambandi i husinu, en eg er ad redda tvi ad fa lux numer sem fyrst, tegar tad kemur ta set eg tad inna siduna.
kv
Valli
ps. 11 dagar

Valgeir Tómasson
1 athugasemd